Laust starf tómstundaleiðbeinanda í Félagsmiðstöðinni Borunni

Félagsmiðstöðin Boran, Hafnargötu 17, býr börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna.

Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Tímabil ráðningar er 1. september 2025 – 10. júní 2026

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kamilla Jónsdóttir, umsjónamaður félagsmiðstöðvarinnar Borunnar í síma 864-8644 eða í gegnum netfangið kamilla.jonsdottir@vogar.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2025

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Umsóknir skulu berast á netfangið kamilla.jonsdottir@vogar.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélagi Suðurnesja.