Laust starf - leikskólakennari

Leikskólakennari óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starfshlutfall.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Virðing, umhyggja, samvinna og gleði eru leiðandi hugtök í leikskólanum og rík áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Nánari upplýsingar veita:

María Hermannsdóttir leikskólastjóri og Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri, í síma 440-6240. Senda má fyrirspurnir á netfangið leikskoli@vogar.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands.

Umsókn óskast fyllt út rafrænt á heimasíðu leikskólans www.sudurvellir.leikskolinn.is

Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.

Umsóknarfrestur er til 3. desember 2021.

Allir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni.