Laust starf á Heilsuleikskólanum Suðurvöllum

Heilsuleikskólinn Suðurvellir í Vogum óskar eftir að ráða leikskólakennara/starfsmann í fullt starf frá og með 2.janúar 2023.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

 

Allar nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir leikskólastjóri og Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 4406240.

Umsóknarfrestur er til 27.nóvember n.k. og sótt er um starfið á heimasíðu leikskólans https://sudurvellir.leikskolinn.is

Vakin er athygli á að starfið hentar einstaklingum óháð kyni.