Laust starf tómstundaleiðbeinanda í Félagsmiðstöðinni Borunni

Félagsmiðstöðin Boran óskar eftir að ráða inn starfsmann í hlutastarf. Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september.

Félagsmiðstöðin Boran býður börnum og unglingum í 5. - 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Boran er vettvangur fyrir opið félagsstarf, klúbbastarf, skipulagða dagskrá og ýmiskonar viðburði sem starfsfólk framkvæmir með ungmennunum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Stundvísi og skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  •  

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kamilla Huld Jónsdóttir, forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar Borunnar í síma 864-8644 eða í gegnum netfangið kamilla.jonsdottir@vogar.is

Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Umsóknir skulu berast á netfangið kamilla.jonsdottir@vogar.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélagi Suðurnesja.