Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla skólaárið 2019/20

Stóru Vogaskóli
Stóru Vogaskóli

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla skólaárið 2019/20

 

Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara í eftirfarandi stöður:

  • Umsjónarkennslu yngsta eða miðstigi.
  • Textíl

 

Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.

 

Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Áhugi á að starfa með börnum

 

Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið skoli@vogar.is fyrir föstudaginn 17. Maí. 2019.

 

Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250.