Laus staða þroskaþjálfa - sérkennara

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða sérkennara. Ef ekki tekst að ráða í stöðuna þá kemur til greina að ráða starfsmann með menntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% starfshlutfall frá janúar 2024.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Virðing, umhyggja, samvinna og gleði eru leiðandi hugtök í leikskólanum og rík áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Allar nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir leikskólastjóri og Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri, í síma 440-6240. Senda má fyrirspurnir á netfangið leikskoli@vogar.is

Umsóknarfrestur er til 30. nóvember n.k. og sótt er um starfið á heimasíðu leikskólans www.sudurvellir.leikskolinn.is

Vakin er athygli á að starfið hentar einstaklingum óháð kyni.