Laus staða leikskólakennara í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starfshlutfall sem fyrst.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, þá koma aðrar umsóknir til greina, hvetjum áhugasama til að sækja um starfið.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Virðing, umhyggja, samvinna og gleði eru leiðandi hugtök í leikskólanum og rík áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Allar nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir leikskólastjóri og Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri, í síma 440-6240. Senda má fyrirspurnir á netfangið leikskoli@vogar.is

Umsóknarfrestur er til 15. janúar n.k. og sótt er um starfið á heimasíðu leikskólans www.sudurvellir.leikskolinn.is