Velferðarsvið Suðurnesjabæjar leitar að öflugum og jákvæðum starfsmanni í stuðningsþjónustu. Starfshlutfallið er 30-50% og er unnið á dagvinnutíma.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér stuðning við einstaklinga sem búa á eigin heimili og þurfa aðstoð vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda. Þjónustan felst meðal annars í heimilishaldi og persónulegum stuðningi sem styður einstaklinga til sjálfstæðrar búsetu og fer starfið að mestu fram í Vogum.
Suðurnesjabær veitir íbúum þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Helstu verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni, til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal skila rafrænt á heimasíðu Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.
Nánari upplýsingar veita Thelma Hrund Guðjónsdóttir, teymisstjóri stuðnings- og stoðþjónustu thelma@sudurnesjabaer.is eða Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs gudrun@sudurnesjabaer.is 425-3000.