Landsnet og Sveitarfélagið Vogar skrifa undir samkomulag vegna Suðurnesjalína

Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri og Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landnsets undirrita samkomul…
Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri og Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landnsets undirrita samkomulagið

Sveitarfélagið Vogar og Landsnet hafa komist að samkomulagi um lagningu á Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu og að samhliða verði unnið að undirbúningi þess að leggja Suðurnesjalínu 1 í jörðu. Þegar Suðurnesjalína 2 verður komin í rekstur verður ráðist í fyrsta áfanga þess verkefnis sem felur í sér að Suðurnesjalína 1 verði lögð í jörðu á um 5 km kafla á milli Grindavíkurvegar og Vogaafleggjara. Strengframkvæmdin er jafnframt fyrsti áfanginn í að styrkja tengingu Sveitarfélagsins Voga vegna mögulegrar tenginga stærri notenda við flutningkerfið í sveitarfélaginu.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir það fagnaðarefni að öll framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 liggi fyrir.

„Samkomulagið sem við undirrituðum í dag náðist með góðri samvinnu okkar hjá Landsneti og Sveitarfélagsins Voga. Suðurnesjalína 2 mun tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og um leið skapa tækifæri til uppbyggingar, atvinnuþróunar og orkuskipta. Ný áform um atvinnuuppbyggingu innan sveitarfélagsins munu kalla á frekari styrkingu á flutningskerfinu og við sjáum fyrir okkur að fyrsti áfanginn í þá áttina sé að setja hluta af Suðurnesjalínu 1 í jörðu. Framundan eru umtalsverðar framkvæmdir í flutningkerfinu á Suðurnesjum til að tryggja öryggið á svæðinu og mæta auknum orkuflutningi vegna orkuskiptanna ásamt fjölbreyttri uppbyggingu atvinnutækifæra.„ segir Guðmundur Ingi.

Skipulagsnefnd Voga samþykkti á fundi sínum í gær að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 á þeim forsendum sem fram koma í samkomulaginu og samþykkti bæjarstjórn framkvæmdaleyfið á fundi í hádeginu í dag.

Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga segir það ánægjulegt að sátt hafi náðst í þessu mikilvæga hagsmunamáli.

„Það er mikið fagnaðarefni að okkur hafi tekist að ná sátt í þessu mikilvæga hagsmunamáli. Við bindum vonir við að nú verði hægt að leggja grunninn að því að auka afhendingaröryggi á Suðurnesjum til framtíðar, meðal annars með tilliti til náttúruvár. Í samkomulaginu er komið til móts við sjónarmið bæjaryfirvalda í Vogum sem hafa lagt þunga áherslu á að framkvæmdin hafi sem minnst áhrif á ásýnd svæðisins sem eins og allir vita er gátt erlendra ferðamanna inn í landið og hefur hlotið viðurkenning UNESCO sem jarðfræðilega mikilvægt svæði á heimsvísu. Með samkomulaginu er jafnframt tekið mikilvægt skref í átt að því að styrkja flutningskerfið innan sveitarfélagsins sem styður við metnaðarfull áform bæjaryfirvalda um öfluga atvinnuuppbyggingu í Vogum „ segir Gunnar Axel