Kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. 19. ágúst.

Boð á kynningarfund um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í heilbrigðisumdæmi Suðurnesja 19. ágúst næstkomandi.

 

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu.

Heilbrigðisráðherra leggur áherslu á að kynna heilbrigðisstefnuna í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Þegar hafa verið haldnir tveir slíkir fundir í heilbrigðisumdæmum Norðurlands og Vestfjarða, þann 14. ágúst verður heilbrigðisstefnan kynnt í heilbrigðisumdæmi Suðurlands og 15. ágúst í heilbrigðisumdæmi Vesturlands.

Þann 19. ágúst  næstkomandi stendur heilbrigðisráðherra fyrir opnum kynningarfundi um heilbrigðisstefnuna í heilbrigðisumdæmi Suðurnesja, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fundurinn verður haldinn í fundarsal heilbrigðisstofnunarinnar, Skólavegi 6 í Reykjanesbæ og stendur frá kl. 17.00 – 19.00.

Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Dagskrá fundarins:

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra – Kynning á heilbrigðisstefnu
  • Markús Ingólfur Eiríksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja – Sýn forstjóra
  • Alma D. Möller landlæknir – Heilbrigðisstefna frá sjónarhóli landlæknis
  • Pallborð: Auk frummælenda tekur Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar þátt í pallborðsumræðum ásamt Elsu B. Friðfinnsdóttur eða Ásthildi Knútsdóttur, skrifstofustjóra úr heilbrigðisráðuneytinu.

Fundarstjóri er Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.