Kynningarfundur Kiwanis í Vogum – Viltu hafa jákvæð áhrif í þínu samfélagi?
Fimmtudaginn 15. október kl. 19:30 verður haldinn kynningarfundur Kiwanis í Álfagerði í Vogum vegna fyrirhugaðrar stofnunar Kiwanisklúbbs í sveitarfélaginu.
Kiwanis eru alþjóðleg þjónustusamtök sjálfboðaliða sem hafa það að markmiði að bæta samfélagið, með sérstaka áherslu á velferð barna og ungmenna.
Með þátttöku í Kiwanis gefst einstaklingum tækifæri til að láta gott af sér leiða, efla tengslanet sitt, kynnast nýju fólki og taka þátt í fjölbreyttum og gefandi samfélagsverkefnum.
Á fundi frístunda- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Voga þann 24. september sl. var kynnt fyrirhuguð stofnun Kiwanisklúbbs. Nefndin þakkaði fulltrúum Kiwanis fyrir góða kynningu og fagnaði áhuga þeirra og vilja til að stofna klúbb í sveitarfélaginu.
Frístunda- og menningarnefnd hvetur íbúa til að fjölmenna á kynningarfundinn og kynna sér starfsemi Kiwanis og þau tækifæri sem felast í stofnun klúbbs í Vogum.
Fundurinn er öllum opinn og það kostar ekkert að mæta og kynna sér starfsemina.
Verið hjartanlega velkomin!