Bæjarstjórn samþykkt á fundi sínum 30. apríl sl. að kynna skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar við Hafnargötu og Jónsvör. Ásamt deiliskipulagstillögu við Hafnargötu 101.
Fyrirhuguð uppbygging mun styðja við fjölbreyttara framboð af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu en jafnframt stuðla að verndun og varðveislu atvinnusögunnar með endurbyggingu elsta húshluta fyrrverandi fiskvinnsluhúss. Í endurbyggðum húshluta til vesturs verður gert ráð fyrir verslun- og/eða þjónustu og fjarvinnuaðstöðu (skrifstofuhótel). Í nýjum húshluta til austurs er gert ráð fyrir fjölbýlishúsi með inngöngum, bíl- og hjólageymslum ásamt geymslum íbúða á jarðhæð en íbúðir verða á 2-4. hæð. Uppbygging á lóðinni styður við markmið sveitarfélagsins um fjölbreyttara búsetuform og nýtist bæjarbúum öllum vegna verslunar- og þjónusturýma. Lóðin er á eyri sem er nokkuð flöt en austan hennar eru íbúagötur. Sunnan lóðarinnar er iðnaðar- og athafnasvæði á hafnarsvæði sem er á landfyllingu. Norðvestan við lóðina umlykur sjórinn hana með sjóvarnargörðum og gönguleið.
Vegna vinnu við deiliskipulag er þörf á að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins og því tekur skipulagslýsing þessi einnig til breytingar á aðalskipulagi.
Skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu má finna hér
Skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu má finna hér