Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að sýna aðgát vegna kvikmyndatöku sem fram fer á Vatnsleysuvegi og Stóru-Vatnsleysuvegi dagana 11. – 12. apríl næstkomandi.
Tökur munu fara fram að kvöldi og nóttu, frá kl. 20:00 til 05:00, og geta haft í för með sér tímabundnar truflanir á umferð. Á meðan á tökum stendur verður umferð stöðvuð í stuttum lotum, yfirleitt í 5–10 mínútur í senn, auk þess sem þrengingar verða á vegum og hjáleiðir merktar eftir þörfum.
Unnið verður samkvæmt viðeigandi öryggis- og umferðarreglum og verður svæðið merkt sérstaklega. Starfsmenn á svæðinu munu einnig leiðbeina vegfarendum eftir þörfum.
Sveitarfélagið biður íbúa og aðra vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að skapast vegna þessa og þakkar fyrir sýndan skilning.