Kvennahlaup ÍSÍ er 30 ára í ár!

Í ár verður hlaupið á yfir 80. stöðum á landinu og eru Vogar engin undantekning. Það fer fram 15. júní næstkomandi og verður ræst frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Skráning fer fram þar. 

 

Fyrsta Kvenna­hlaupið var haldið árið 1990. Upp­haf­lega var markmið hlaups­ins að fá fleiri konur út að hreyfa sig og að hvetja konur til þátt­töku í starfi íþrótta­hreyf­ing­ar­innar á Íslandi. Þau markmið hafa um margt náðst þar sem konur hreyfa sig mun meira í dag en fyrir 30 árum, ís­lenskar íþrótta­konur eru að ná frá­bærum ár­angri á heimsvísu og margar konur í for­svari fyrir íþrótta­hreyf­ing­una hér­lendis.

 

Í dag er áherslan ekki hvað síst á sam­stöðu kvenna, að hver njóti þess að hreyfa sig á sínum for­sendum og eigi ánægju­lega sam­veru­stund með fjöl­skyldu og vinum.

 

Hlaupið er ár­viss viðburður hjá mörgum konum sem taka dag­inn frá til að hlaupa með dætrum, mæðrum, ömmum, systrum, frænkum og vin­konum sínum og margir karl­menn slást líka í hóp­inn.

 

Ekki þarf að skrá sig sér­stak­lega í hlaupið. Hægt er að kaupa boli upp í Íþróttamiðstöð og kosta þeir 2000 kr. fyrir 13 ára og eldri og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri.