Jóni Inga Baldvinssyni færðar þakkir fyrir farsæl störf í kjörstjórn sveitarfélagsins

Jóni Inga Baldvinssyni var færður þakklætisvottur frá sveitarfélaginu á síðasta bæjarstjórnarfundi í tilefni þessa að hann hefur sagt sig frá kjörstjórn eftir áratugalangt starf. Jón Ingi var í kjörstjórn í rúm 40 ár og um helming þess tíma var hann formaður kjörstjórnar. Vitneskja Jóns Inga, festa og nákvæmni nýttist vel í störfum kjörstjórnar.

Það voru fagnaðarfundir þegar Jón Ingi kom í hús fyrir bæjarstjórnarfund en Jón Ingi var jafnframt vinsæll kennari og farsæll aðstoðarskólastjóri í Stóru-Vogaskóla. Hann hefur kennt ansi mörgum íbúum Voga, þar með talið nokkrum bæjarfulltrúum.

Jóni Inga eru færðar kærar þakkir fyrir framlag sitt í þágu samfélagsins í Vogum.