Jólajósin tendruð

Ljósin tendruð á Jólatrénu í Aragerði.

Mikið var um dýrðir þegar ljósin voru tendruð á Jólatrénu í Vogum í dag. Nemendur Stóru-Vogaskóla voru mættir klukkan níu og biðu spenntir eftir að ljósin á jólatrénu yrðu kveikt. Ljósin voru svo tendruð eftir niðurtalningu barnanna. Börnin brustu í söng, en söngurinn virðist hafa náð eyrum tveggja bræðra, þeirra Skyrgáms og Hurðaskellis. Þeir komu askvaðandi niður af Keili og sungu og dönsuðu í kringum uppljómað tréð með krakkaskaranum. Eftir öll herlegheitin var börnunum svo boðið upp á heitt kakó, eftir heitan sopann fóru þau svo aftur í skólann.

Upp úr 9:30 komu svo börnin úr leikskólanum Suðurvöllum og skreyttu tréð með skrauti sem þau höfðu gert sjálf. Bræðurnir Skyrgámur og Hurðaskellir skemmtu sér konunglega og voru dollfallnir yfir hvað leikskólabörnin voru dugleg. Eftir spjall við Jólasveinanna og vinnunna við að skreyta fengu leikskólabörnin einnig kakósopa.

Viðburðurinn var hinn hátíðlegasti og virtust allir skemmta sér mjög vel.

1.-7. Bekkur dansa í kringum jólatréð.

Börnin ylja sér með Kakó.

Leikskólakrakkar með Hurðaskelli og Skyrgám      

Leikskólabörnin skreyta tréð

Skrautið á jólatrénu.