Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september 2025

Íþróttavika Evrópu, European Week of Sport, #BeActive fagnar 10 ára afmæli í ár. Átakið hefur hvatt milljónir Evrópubúa til að hreyfa sig meira og lifa heilbrigðari lífsstíl. Við hvetjum ykkur öll til að mæta og taka þátt í skemmtilegum viðburðum!

Íþróttavikan, sem haldin er í september ár hvert, var sett á laggirnar árið 2015 af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undir slagorðinu #BeActicve.

Markmið íþróttavikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri, og úr öllum samfélagshópum, til að taka þátt í hreyfingu - hvort sem er í íþróttum, leik, daglegri hreyfingu eða skipulögðum viðburðum. Í gegnum árin hefur Íþróttavika Evrópu vaxið ört og nær nú til 42 landa með þúsundum viðburða og milljóna þátttakenda ár hvert.

Endilega notið myllumerkið (hasthtag) #beactive og merkið Íþróttamiðstöðina í Vogum ef þið póstið myndum af viðburðum á samfélagsmiðla!

Það má gjarnan hafa samband við Ástu Maríu Guðmundsdóttur, forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar í Vogum í gegnum netfangið astamaria@vogar.is ef áhugi er á að bæta við viðburði eða taka þátt með öðrum hætti.

Hér má sjá dagskrá Íþróttamiðstöðvarinnar í Vogum í tilefni af Íþróttaviku Evrópu: