
Íþróttamiðstöðin í Vogum leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa sem laugaverðir sumarið 2026. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf íþróttamiðstöð þar sem öryggi gesta, góð þjónusta og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi.
Íþróttamiðstöðin í Vogum er lifandi og mikilvægur samkomustaður í samfélaginu þar sem áhersla er lögð á heilsu, hreyfingu og vellíðan allra aldurshópa. Við leggjum metnað í að skapa jákvætt og öruggt umhverfi fyrir bæði gesti og starfsfólk.
Um er að ræða þrjár stöður á tímabilinu 25. maí – 31. ágúst 2026 þar sem unnið er á dag,-kvöld- og helgarvöktum. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsækjandi þarf standast námskeið í Öryggi og björgun og hæfnispróf skv. III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Áætlað er að námskeið og hæfnispróf fari fram í maí 2026.
Sjá nánar: https://ust.is/hringrasarhagkerfi/hollustuhaettir/sundstadir/haefnisprof-starfsmanna/
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí og sótt námskeið í skyndihjálp og björgun um miðjan maí.