Íþróttamiðstöðin í Vogum óskar eftir kvenkyns starfsmanni

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann í Íþróttamiðstöðina í Vogum. Um er að ræða vaktavinnu, 90% starfshlutfall, þar sem vinnutíminn er frá 6:30 – 13:00.
 
Helstu verkefni og ábyrgð

· Afgreiðsla og þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.

· Klefa- og sundlaugargæsla.

· Almenn þrif og ræstingar á mannvirkinu.

· Önnur tilfallandi verkefni.

 Menntunar- og hæfniskröfur

· Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.

· Reynsla af þjónustustarfi er kostur.

· Æskilegt er að viðkomandi geti tjáð sig bæði á íslensku og ensku.

· Lágmarks tölvukunnátta.

· Gerð er krafa um ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

· Stundvísi, snyrtimennska, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

· Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

· Lágmarksaldur umsækjanda er 18 ára

· Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, sjá upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar um hæfnispróf starfsmanna sundlauga. Vinnuveitandi skipuleggur og greiðir fyrir hæfnispróf.

Íþróttamiðstöðin í Vogum er reyklaus vinnustaður.