Íþróttamaður ársins í Sveitafélaginu Vogum 2021

Þriðjudaginn 28 . desember næstkomandi, klukkan 18:00 verður Íþróttamaður ársins í Sveitarfélaginu Vogum 2021 útnefndur í Álfagerði.

Tveir einstaklingar hafa verið tilnefndir og verða þeir báðir heiðraðir og annar þeirra hlýtur nafnbótina  Íþróttamaður ársins.

Tilnefndir eru:

  • Unnar Ari Hansen
  • Ellen Lind Ísaksdóttir

Á sama viðburði fá svo efnilegustu börn og unglingar hvatningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga.

Að þessu sinni geta einungis tilnefndir og verðlaunahafar auk foreldra og maka mætt á viðburðinn vegna samkomutakmarkanna.

VogarTV streyma viðburðinum á netið svo allir geti fylgst með heima frá.

"Við hvetjum alla til að fylgjast með!"