Íþróttamaður ársins 2019 í Sveitarfélaginu Vogum

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2019.

Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16 ára eða eldri. Heimilt er að nefna ungling 14-16. ára sem keppir í flokki fullorðinna og er að ná það góðum árangri  að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.

Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar.

Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt í Álfagerði á Gamlársdag kl. 11:00.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi  sendast á matthias@vogar.is eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu fyrir 5. desember.