Innritun í 1. bekk í Sveitarfélaginu Vogum

Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk haustið 2026.

Umsóknir um skólavist fara nú fram rafrænt í gegnum Nemendagrunn og skráning fer fram með rafrænum skilríkjum. Foreldrar og forráðamenn sækja um skólavist fyrir börn sín í gegnum island.is.

Foreldrum eða forráðamönnum sem ekki hafa rafræn skilríki er bent á að hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem sótt er um í þar sem veitt er aðstoð við að fylla út og skila umsókn.