Íbúar hvattir til að skreyta og njóta helgarinnar

Eins og flestir ættu að vita er ekki um skipulögð hátíðahöld að ræða hjá okkur þessa helgina eins og til stóð. Íbúar eru hvattir til að skreyta hverfin og njóta samveru með vinum og fjölskyldu. 

Nánar má lesa um þetta í frétt hér á heimasíðunni og hvetjum við alla til að lesa hana vel. Ratleikurinn opnar á morgun og flugeldasýningin verður annað kvöld kl. 23.00 - vonandi verða veðurguðirnir með okkur í liði.