Íbúafundur um umhverfismál

Umhverfisnefnd boðar til íbúafundar um umhverfismál miðvikudaginn 4.mars kl: 19:30 í Álfagerði.

Á fundinn koma Steinþór Þórðarson forstjóri Kölku og Líf Lárusdóttir, markaðsstjóri Terra. Þau leiða okkur í allan sannleika um flokkunarmál og svara spurningum sem kunna að brenna á íbúum varðandi þau.

Þóra Margrét Þorgeirsdóttir verður með fræðsluerindið „sorp, lærdómsferli fjölskyldu“ en hún og fjölskylda hennar hafa æft sig mikið í að verða ábyrgir neytendur. Þau hafa markvisst minnkað allt sorp heimilisins. Þóra ætlar að segja okkur frá reynslu sinni af ferlinu og fræða okkur um leiðir til umhverfisvænna lífs.

Skemmtilegur og upplýsandi vettvangur þar sem íbúar geta fræðst um þessi brennandi málefni. Að auki geta fundarmenn komið á framfæri vangaveltum sínum um umhverfismál almennt, í Vogum. Tekið verður á móti hugmyndum/athugasemdum á fundinum sem uhverfisnefnd mun vinna úr.

Kaffi á könnunni og vonumst til að sjá sem flesta.