Íbúafundur um atvinnumál á Suðurnesjum

Íbúafundur um atvinnumál á Suðurnesjum

„Hvað get ég gert?“

Sveitarfélögin á Suðurnesjum ásamt Vinnumálastofnun, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum /Atvinnuþróunarfélaginu Heklunni, Samtökum atvinnurekenda og stéttarfélögin af svæðinu boða til íbúafundar í Stapa fimmtudaginn 17. september kl. 17.00. Íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum er boðnir velkomnir á fundinn í Stapa en fundinum verður einnig streymt á Facebook-síðu Víkurfrétta og sveitarfélaganna.

Markmiðið með fundinum er að kynna fyrir íbúum svæðisins þær aðgerðir sem eru í gangi vegna þess atvinnuleysis sem nú er uppi en einnig að hvetja íbúa til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. Íbúum mun gefast kostur á að senda inn tillögur og spurningar. Fyrirkomulagið á því verður útskýrt í upphafi fundar.

Frummælendur:

  • Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunnar á Suðurnesjum
  • Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
  • Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
  • Guðjón Skúlason, formaður Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi
  • Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Fundarstjóri; Róbert Ragnarsson