Hver á skilið viðurkenningu í Vogum?

Óskað eftir tilnefningum fyrir árið 2026

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga auglýsir eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningarverðlauna. Með viðurkenningunum er vakin athygli á íþróttaárangri, jákvæðu fyrirmyndarhlutverki og mikilvægu framlagi til samfélagsins.

Íþróttamaður ársins 2026

Við valið er horft til íþróttaárangurs á árinu, framfara og metnaðar, íþróttamannslegrar hegðunar og fyrirmyndarhlutverks. Íþróttaárangur vegur þyngst.

Tilnefndur einstaklingur skal hafa náð 16 ára aldri á árinu og eiga lögheimili í Vogum eða keppa fyrir íþróttafélag sem starfar í sveitarfélaginu. Einnig má tilnefna 14–16 ára einstaklinga sem keppa í flokki fullorðinna og hafa náð framúrskarandi árangri.

Sjálfboðaliði ársins 2026

Viðurkenningin er ætluð einstaklingi sem hefur með óeigingjörnu sjálfboðaliðastarfi haft jákvæð og mikilvæg áhrif á íþrótta-, frístunda- eða menningarstarf í Vogum. Horft er meðal annars til framlags, frumkvæðis, eljusemi og fyrirmyndarhlutverks. Tilnefning getur byggst á sérstöku framlagi á árinu eða langvarandi starfi.

Ekki er gerð krafa um lögheimili í Vogum, en starfið þarf að tengjast samfélaginu.

Hvatningarverðlaun

Tilnefna má einstaklinga eða hópa á aldrinum 10–16 ára sem sýna áhuga, góða ástundun og hegðun innan vallar sem utan, stuðla að góðum félagsanda og eru öðrum ungmennum góð fyrirmynd.

Hverjir geta tilnefnt?

Íbúar Voga, íþróttafélög, önnur félagasamtök og aðrir sem þekkja til árangurs eða starfa viðkomandi geta sent inn tilnefningar. Frístunda- og menningarnefnd getur einnig lagt fram tilnefningar.

Hvernig sendi ég inn tilnefningu?

Tilnefningar skulu berast skriflega ásamt upplýsingum um viðkomandi einstakling eða hóp og rökstuddri greinargerð. Fyrir hvatningarverðlaun þarf ítarlega greinargerð.

Skilafrestur

Fyrir 10. desember 2026

Tilnefningar sendist

Tilnefningarform eða skrifstofa@vogar.is 

Nánari upplýsingar um reglur

www.vogar.is 

Viðurkenningar verða afhentar við hátíðlega athöfn á vegum sveitarfélagsins, að jafnaði í janúar 2027.

Tökum eftir þeim sem gera samfélagið okkar betra!