Hreinsunardagar í Vogum standa yfir dagana 25. maí – 11. júní.

Götusópun er lokið og nú taka Hreinsunardagar við. Íbúar eru hvattir til að taka til á lóðum sínum og í nærumhverfi.  

Gámur fyrir garðaúrgang er kominn við tjaldsvæðið við Hafnargötu. 

Minnum á að:

  • Jarðveg og garðúrgang má losa í gám við tjaldsvæðið. Munið að tæma poka.
  • Garðaúrgangur sem skilinn er eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa að því skilyrði að hann sé snyrtilega frágenginn í pokum.
  • Íbúar Vatnsleysustrandar eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 440-6200 og óska eftir því að pokar með garðaúrgangi verði hirtir.
  • Gámasvæðið verður opið á hefðbundum tíma og grenndargámar eru við tjaldsvæðið, fyrir frekari flokkun en við minnum fólk á mikilvægi þess að flokka allt rusl. Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina verður sem hér segir : þriðjudaga kl. 17-19, föstudaga kl. 17-19 og sunnudaga kl. 12-16. AUKA OPNUM LAUGARDAGINN 10. JÚNÍ KL. 12-16.
  • Hægt verður að óska eftir að láta sækja járn s.s. bílhræ og annað sambærilegt. Beiðnir fara í gegnum skrifstofu í síma 440-6200.