Hjólað í vinnuna 2021

Nú styttist í að vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2021 hefjist í átjánda sinn en að þessu sinni fer keppnin fram frá 5. - 25. maí. Opnað verður fyrir skráningu þann 21. apríl og við hvetjum alla til að skrá sig strax til leiks.

Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 5.-25. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar 21. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 25. maí. Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Þrátt fyrir að enn ríki töluvert sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu þá er aldrei mikilvægara en núna að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir um allt land geta nú farið að huga að því að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér. Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Sami háttur verður hafður á og í fyrra að fyrir þá sem vinna heima að er úrtfærslan einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland og sveitafélagið Vogar hvetja alla til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem "Hjólað í vinnuna" er.