Heimsókn til Vélavina

Hólmfríður sviðsstjóri fjölskyldusviðs leit við á fundi Vélavina í gamla slysavarnarskýlinu á dögunum.

Félagsskapurinn var stofnaður árið 2012 og þar hafast við bílaáhugamenn sem bæði spjalla um og gera upp bíla, já og útbjuggu og viðhalda lest sem gleður unga sem aldna á Fjölskyldudögum.

Í gegnum bíla og tegundir þeirra má sjá söguna og þess utan þá er svona félagsskapur mikilvægur fyrir minni og gamlar sögur sem sviðsstjóri fékk aldeilis að heyra á þessum góða fundi. Svona félagsskapur er ekki bara áhugamál heldur félagsleg og heilsueflandi iðja sem getur styrkt bæði einstaklinga og samfélag.

Nýverið gerðu þeir samstarfssamning við sveitarfélagið og við hlökkum sannarlega til áframhaldandi samstarfs. Hvern er ekki farið að hlakka til Fjölskyldudaga?