Heilsuleikskólinn Suðurvellir

 

 

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara/starfsmann sem fyrst í 100% starfshlutfall.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Virðing, umhyggja, samvinna og gleði eru leiðandi hugtök í leikskólanum og rík áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Allar nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir leikskólastjóri og Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri, í síma 440-6240. Senda má fyrirspurnir á netfangið leikskoli@vogar.is

Umsóknarfrestur er til 10. janúar n.k. og sótt er um starfið á heimasíðu leikskólans www.sudurvellir.leikskolinn.is

Vakin er athygli á að starfið hentar einstaklingum óháð kyni.