Tilkynning vegna gosmóðu frá eldgosinu við Litla-Hrút 21. júlí 2023

 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun liggur gosmóða yfir
Suðurnesjum í bland við þokuloft. Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast m.a. í
SO4 (súlfat) og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2) en
mælingar á fínna svifryki gefa vísbendingar um að þessi mengun sé til staðar. Loftgæðamælistöðvar á
svæðinu sýna nú hækkuð gildi fínasta svifryksins.
Gosmóða eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir
hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem
myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða.
Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru
viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.
Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum. Ekki er mælt með því að láta ung
börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.
Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það
    dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir
    menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra
    • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
    • Hækkaðu hitastigið í húsinu.
    • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum
loftmengunar á síðu landlæknis: https://island.is/eldgos. Mælingar á loftgæðum eru
aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.is, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk
SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar. Spár um gasmengun má sjá á vef
Veðurstofunnar, https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/