Góð þátttaka í stóra plokkdeginum

Áætlað er að um 40 Vogabúar hafi tekið þátt í Stóra plokkdeginum laugardaginn 25. apríl. Gaman er að sjá að mikil vakning virðist vera meðal íbúa um að hreinsa upp eftir sig og aðra og margir sem plokka allan ársins hring. Á Facebook síðu sveitarfélagins má sjá nokkrar myndir frá deginum.

https://www.facebook.com/sveitarfelagidvogar/