Vinnuskólinn 2026 - opnað fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskólann. Áherslur vinnuskólans verða með sambærilegu sniði og síðustu ár. Kennslu og fræðslu hefur verið gefið aukið vægi og þá einkum fræðsla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði, skyndihjálp, vinnuöryggi, umhverfisfræðslu og jákvæð samskipti. Er þetta gert með það að leiðarljósi að þátttakendur vinnuskólans komi betur undirbúnir út í atvinnulífið sem og til að auka gæði þeirrar starfsemi sem fram fer innan vinnuskólans.

Breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi vinnuskólans með það að leiðarljósi að koma til móts við óskir úr samfélaginu. Í ár verður því fyrirkomulagið með þeim hætti að fjögur tímabil verða fyrir árganga 2011 og 2012 og geta nemendur valið tvö tímabil af fjórum en þó verði hámarksfjöldi á hverju tímabili 14 úr hvorum árgangi. Við hvetjum þá sem eru með plön fyrir sumarið að sækja um sem fyrst til að tryggja sér pláss á því tímabili sem hentar best. Árgangurinn 2010 mun áfram vera með eitt samfleytt tímabil, ásamt því að aðeins verða 8 störf verða í borði fyrir nemendur á fyrsta ári í framhaldsskóla, árgangur 2009.

Eftirfarandi fjögur tímabil verða í boði fyrir 8. og 9. bekk, hvert tímabil í tvær vikur í senn. Aðeins hægt að veja tvö tímbil og hámarks fjöldi á hverju tímabili verður 14 úr hvorrum bekk.

  • Tímabil 1: 15. júní – 25. júní
  • Tímabil 2: 29. júní – 9. júlí
  • Tímabil 3: 20. júlí – 30. júlí
  • Tímabil 4: 4. ágúst – 13. ágúst

Umsóknir fyrir Vinnuskólann skilast á rafrænu formi í gegnum íbúagátt sveitarfélagins. Á umsóknarforminu þarf að haka við hvaða tímabil er valið og eins hvort nota eigi skattkort, ef við á. Einnig þarf að haka við hvort birta megi myndir af krökkunum við störf sín í vinnuskólanum. Eingöngu er um að ræða myndbirtingar á miðlum sveitarfélagsins þar sem fjallað er um leik og starf vinnuskólans og er ávallt gætt fyllstu varðúðar, nærgætni og góðs siðferðis.

Hér má nálgast handbók vinnuskólans 2026.

Sækja um hér