Furðuverur á sveimi í Vogum

Furðuverur á sveimi í Vogum.

Þrettándinn, eða síðasti dagur jóla,  var haldinn hátíðlegur í Vogum. Vogafólk kann vel að meta góða skemmtun og voru jólin kvödd með huggulegri stemmningu í Aragerði. Börnin grilluðu sykurpúða yfir opnum eldi með skógræktarfélaginu og tröllahjónin Grýla og Leppalúði mættu á svæðið ásamt ungum syni sínum og gæludýri.
Börnin spjölluðu við þessar kynlegu fjölskyldu og léku við drenginn þeirra í sleðabrekkunni.

Lionsklúbburinn sá svo um að ylja gestum, eftir útiveruna, með heitu súkkulaði og hægt var að maula vanilluhringi með veigunum.

Eftir samveruna í Aragerði bauð kvenfélagið upp á furðufatadiskó í félagsmiðstöðinni. Húsfyllir var diskóið og skemmtu börnin sér ótrúlega vel.

Þrettándaviðburðurinn heppnaðist með eindæmum vel og gestir voru mjög ánægðir með daginn.