Frisbígolfvöllur settur upp í Vogum

Útsýnið af annarri holu er ekkert slor
Útsýnið af annarri holu er ekkert slor

Nú er búið að setja upp frisbígolfvöllinn, eða folfvöllinn,  í Aragerði sem margir hafa beðið eftir með óþreyju. Settar voru upp 7 körfur. Óþreyjufullir geta byrjað að nota völlinn til æfinga og keppni en á næstu dögum verður lokafrágangur kláraður, t.d. á eftir að setja upp upphafsstaðina fyrir hverja körfu og númera þær. Þegar því er lokið verður völlurinn svo formlega vígður.

Hér má sjá kort af vellinum