Sveitarfélagið Vogar vill vekja athygli íbúa á mikilvægi þess að eingöngu sé hent salernispappír í klósett. Því miður hefur borið á því að ýmiss konar úrgangi, svo sem blautþurrkum, pappírshandklæðum og öðrum hlutum, sé hent í klósett.
Slík notkun veldur verulegum vandamálum í fráveitukerfinu. Dælur sem sjá um að flytja frárennsli stíflast þegar óviðeigandi efni berast í kerfið, sem getur leitt til bilana, aukins kostnaðar og óþæginda fyrir íbúa.
Við biðjum íbúa eindregið um að huga að því hvað fer í klósettið.
Með samstilltu átaki getum við komið í veg fyrir óþarfa truflanir og tryggt að fráveitukerfið virki sem skyldi.
Sveitarfélagið þakkar íbúum fyrir samstarfið.
"Dælur sem sjá um að flytja frárennsli stíflast þegar óviðeigandi efni berast í kerfið"