Framkvæmdir á Stapavegi.

                     

Tilkynning um framkvæmdir

í götunni Stapavegi,

á kaflanum milli Iðndals og Hafnargötu

 

Á næstunni hefjast framkvæmdir við lagfæringar götunnar og gerir verktaki ráð fyrir að hefja framkvæmdir í maí.

Um er að ræða lagfæringar götukanta og lagt verður nýtt malbik á götuna.

Óhjákvæmilega hafa framkvæmdirnar í för með sér einhverja röskun og truflun fyrir vegfarendur meðan á þeim stendur. Búast má við því að loka þurfi fyrir umferð um götuna um einhvern tíma.  Reynt verður eftir föngum að haga framkvæmdum þannig að óþægindi verði sem minnst.

Um leið og beðist er velvirðingar af því ónæði sem af þessu hlýst er óskað eftir því að íbúar og aðrir sýni biðlund og taki tillit til framkvæmdanna og þeirrar umferðastýringar og lokanna sem þeim fylgir.

Verklok eru áætluð í lok júní.

 

Sveitarfélagið Vogar