Frábær mæting á fræðslukvöldið „Bestar á Breytó“ í Vogum

Mikil ánægja ríkti á fræðslukvöldinu Bestar á Breytó sem haldið var í Álfagerði í Vogum þann 19. maí síðastliðinn. Kvöldið var samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Voga, verkefnissins Saman í samfélagi, GeoSilica og Röggu Nagla og vakti mikla athygli meðal kvenna á Suðurnesjum.

Uppselt var á viðburðinn og mættu tæplega 40 konur til að fræðast um breytingaskeiðið, heilsu og vellíðan á þessum mikilvæga kafla í lífi kvenna.

Frummælendur kvöldsins voru þær Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, og Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica. Þær fóru á skemmtilegan og fræðandi hátt yfir þær líkamlegu og andlegu breytingar sem fylgt geta breytingaskeiðinu, mikilvægi réttrar næringar og bætiefna, auk þess að leggja sérstaka áherslu á gildi styrktarþjálfunar fyrir heilsu, beinþéttni og lífsgæði kvenna. Boðið var upp á veitingar sem runnu ljúflega niður auk þess sem Geo Silica bauð upp á afslátt af vörum sem margar nýttu sér.

Gestir tóku virkan þátt í umræðum og fjölmargar spurningar sköpuðu líflegt og jákvætt samtal um málefni sem oft hafa ekki fengið nægilegt rými í opinberri umræðu.

Viðburðurinn þótti afar vel heppnaður og sýndi glöggt þann mikla áhuga sem er fyrir fræðslu og samtali um heilsu kvenna á miðjum aldri og síðar á ævinni. Sveitarfélagið Vogar þakkar GeoSilica, Röggu Nagla og öllum þeim konum sem mættu.

Markmið viðburðarins var að ná til kvenna á miðjum aldri, efla þekkingu, styrkja konur til sjálfsumhyggju og skapa vettvang fyrir samveru og gagnlegar umræður, markmið sem sannarlega náðust þetta ánægjulega kvöld.