Frá bæjarstjóra

Kæru íbúar

Þótt dagarnir styttist er nóg um að vera í Vogum. Góðar hugmyndir eru að taka á sig mynd og mörg verkefni í gangi sem snerta daglegt líf okkar og framtíð bæjarins.

Sumt skilar sér fljótt en annað þarf lengri undirbúning. Markmiðið er alltaf það sama: að gera Vogana að enn betri stað til að búa á. Hér ætla ég að segja frá nokkrum málum sem hafa verið til umfjöllunar undanfarið og því sem fram undan er. Ég hvet ykkur jafnframt til að kynna ykkur fundargerðir nefnda, bæjarráðs og bæjarstjórnar á vef sveitarfélagsins.

Fjárhagsáætlun og þátttaka í þjóðarsátt

Tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 verður tekin til fyrstu umræðu í bæjarstjórn á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember. Bæjarráð var einhuga um að sveitarfélagið leggði sitt af mörkum til þjóðarsáttar um verðstöðugleika. Við stefnum að því að halda gjaldskrárhækkunum innan 2,5% verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í stað þess að láta þær fylgja verðlagsþróun.

Tillaga að fjárhagsáætlun byggir á þessari áherslu. Sveitarfélögin hafa hér hlutverki að gegna og við viljum axla okkar ábyrgð. Ég vona að sameiginlegt átak stuðli að hjöðnun verðbólgu og skapi svigrúm til vaxtalækkana sem fyrst, heimilum og fyrirtækjum til heilla.

Þetta er fyrsta fjárhagsáætlun núverandi meirihluta og markmiðin eru skýr. Við viljum halda rekstrinum traustum og geta um leið bætt þjónustu og sinnt nauðsynlegri uppbyggingu. Skóla- og leikskólamálin vega þar þungt og kalla bæði á lausnir á brýnum vanda og undirbúning uppbyggingar til lengri tíma.

Börn, fjölskyldur og daglegt líf

Bið eftir leikskólaplássi hefur áhrif á alla fjölskylduna, atvinnuþátttöku foreldra og skipulag hversdagsins. Fjölgun plássa er þess vegna eitt brýnasta verkefnið okkar.

Við buðum út stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla en tilboðin sem bárust voru töluvert yfir kostnaðaráætlun og bæjarráð hafnaði þeim öllum fyrir helgi. Við leitum nú annarra leiða og á meðan liggur ekki fyrir hvenær nýjar deildir geta opnað. Við munum upplýsa foreldra eftir því sem framhaldið skýrist.

Samhliða þurfum við að huga að framtíðarlausn og erum því að skoða stöðu leik- og grunnskólalóðarinnar í Grænuborgarhverfi.

Þjónusta við barnafjölskyldur nær líka til þess sem tekur við að skóladegi loknum. Unnið er að reglum um samgöngustyrk vegna frístundastarfs utan Voga og frístunda- og menningarnefnd hefur lagt til eins árs tilraun með frístundarútu. Markmiðið er að hlutfall barna og ungmenna sem tekur þátt í íþróttum og tómstundum verði að minnsta kosti jafn hátt í Vogum og í nágrannasveitarfélögum okkar. Til þess þurfum við bæði að efla starfið hér heima, svo enn fleiri finni eitthvað við sitt hæfi í ört vaxandi bæ, og draga úr brottfalli með því að auðvelda börnum og ungmennum að halda áfram í því starfi sem þau hafa áhuga á, þótt það sé sótt út fyrir sveitarfélagið.

Við viljum líka að börn og ungmenni hafi sjálf áhrif á samfélagið sitt. Í sumar auglýstum við eftir fulltrúum í Ungmennaráð og nú hefur nýtt erindisbréf ráðsins verið samþykkt. Ungmennaráð hefur tekið til starfa og við hlökkum til að heyra sjónarmið og hugmyndir unga fólksins. Okkar verkefni er að hlusta, ræða hugmyndirnar og fylgja þeim eftir.

Umferðaröryggi og gönguleiðir

Við Stóru-Vogaskóla hefur verið unnið að auknu umferðaröryggi og betri aðstöðu. Breytingar á aðkomu að skólanum kalla á að við gefum okkur tíma til að venjast nýju fyrirkomulagi og sýnum sérstaka aðgát.

Jafnframt er unnið að því að bæta tengingar milli göngustíga og auka umferðaröryggi á gatnamótunum við innkomuna í bæinn. Ég hvet okkur öll til að fara varlega, fylgja merkingum og hafa öryggi barnanna og annarra samborgara okkar ávallt í fyrirrúmi.

Fegrum bæinn okkar

Það skiptir máli að við séum stolt af bænum okkar. Sú tilfinning styrkist þegar við tökum til hendinni, fegrum nærumhverfið, eflum útivistar- og leiksvæðin og bætum ásýnd bæjarins. Þar skipta bæði lítil og stór verkefni máli.

Við viljum heyra hugmyndir ykkar um hvað mætti bæta og hvar væri gott að byrja. Könnun sem nú er í gangi meðal íbúa er liður í því að kalla eftir ábendingum og fá ykkur til liðs við okkur við að velja verkefni og forgangsraða þeim. Þið þekkið nærumhverfið ykkar best.

Eitt verkefnanna sem er í undirbúningi er að bæta leiksvæðið við enda Miðdals, sem tengist Litla skógi með göngustíg. Það hefur fengið vinnuheitið Litli Róló og er ætlað yngstu börnunum okkar. Í samráði við Skógræktarfélagið er unnið að hugmyndum um náttúrulegt og aðgengilegt leik- og dvalarsvæði þar sem börn og fjölskyldur þeirra geta leikið sér og átt góða stund saman.

Voganeistinn og krafturinn í samfélaginu

Bæjarstjórn hefur samþykkt stofnun Voganeistans og reglur sjóðsins. Með honum viljum við auðvelda íbúum, félagasamtökum og öðrum að koma góðum hugmyndum í framkvæmd, hvort sem þær snúa að menningu, listum, íþróttum eða nýsköpun.

Ég hef mikla trú á því sem getur orðið til þegar fólk fær tækifæri og stuðning til að láta á hugmyndir sínar reyna. Ég hlakka til að sjá hvaða verkefni koma fram þegar opnað verður fyrir umsóknir.

Um leið og við styðjum við nýjar hugmyndir þurfum við að hlúa að því öfluga starfi sem þegar er unnið í samfélaginu. Félagasamtökin okkar halda úti fjölbreyttu starfi sem skiptir íbúa á öllum aldri miklu máli. Nú er unnið að endurnýjun samstarfssamninga við þau, þar sem farið verður yfir verkefnin og stuðning sveitarfélagsins, bæði fjárframlög og aðstöðu. Markmiðið er að efla samstarfið, auka gagnsæi og skýra hlutverk og framlag hvors aðila.

Meiri upplýsingar, meira samtal

Bæjarráð hefur samþykkt þátttöku í þróun Vogaappsins, sem á að auðvelda aðgengi að upplýsingum og samskipti við sveitarfélagið. Nýjar reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna eiga sömuleiðis að gera íbúum auðveldara að fylgjast með málum og þeim forsendum sem ákvarðanir byggja á.

Góðar upplýsingar eru mikilvægur grunnur að samtali. En tengslin okkar styrkjast líka í hversdagslegum kynnum, þegar við hittumst, spjöllum og gefum okkur tíma hvert fyrir annað.

Það gladdi mig því mikið að fá okkar yngstu íbúa í heimsókn á bæjarskrifstofuna á dögunum. Þar ræddum við um vettlinga og göngutúrinn í snjónum. Það var kærkomið, og eilítið hátíðlegt nú þegar veturinn er genginn í garð og hátíðirnar fram undan, að fá unga Vogabúa í heimsókn og leysa þau út með piparköku.

Í svona hversdagslegu spjalli lifir líka tungumálið okkar, sem við þurfum að varðveita og miðla áfram til næstu kynslóða. Ég óska ykkur öllum til hamingju með dag íslenskrar tungu.

 

Með bestu kveðju,

Björg Ásta Þórðardóttir

bæjarstjóri