Frá bæjarstjóra

Björg Ásta Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga
Björg Ásta Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga

Kæru íbúar.

Það er rúmur mánuður síðan ég tók við starfi bæjarstjóra Sveitarfélagsins Voga. Fyrstu vikurnar hafa verið annasamar og lærdómsríkar en umfram allt hafa þær staðfest fyrir mér hversu mikill kraftur býr í samfélaginu okkar. Verkefnin eru mörg og áskoranirnar vissulega til staðar, en ég finn jafnframt sterkan vilja til samstarfs meðal íbúa, starfsfólks og bæjarfulltrúa.

Þetta er fyrsti pistillinn undir yfirskriftinni Frá bæjarstjóra. Hér mun ég reglulega segja frá því sem er efst á baugi, verkefnum sem unnið er að og því sem er að gerast í samfélaginu okk

Úti í samfélaginu

Síðustu vikur hef ég átt fjölmörg góð samtöl við íbúa, bæði í vikulegum viðtalstímum og á förnum vegi. Þar hafa komið fram hugmyndir, ábendingar og ólík sjónarmið um þjónustu sveitarfélagsins og þróun þess. Þessi samtöl eru mér dýrmæt og ég hlakka til að halda þeim áfram.

Í einu þessara samtala bað ungur drengur mig um að stofna háskóla í Vogum. Það er vissulega ekki lítil beiðni, en hún ber vott um metnað, bjartsýni og skemmtilega framtíðarsýn. Mér þótti hún líka ágæt hvatning til að við megum alveg hugsa stórt um framtíð Voga.

Það er nefnilega kraftur í samfélaginu sem birtist víða, í atvinnulífinu, félagasamtökunum og unga fólkinu okkar. Ég hef hafið heimsóknir til fyrirtækja í sveitarfélaginu og þar fengið tækifæri til að kynnast atvinnulífinu betur og heyra beint frá atvinnurekendum um þau tækifæri og þær áskoranir sem þeir sjá. Heimsóknirnar veita mikilvæga innsýn í hvernig sveitarfélagið getur stutt við áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins.

Félagasamtökin okkar sinna fjölbreyttu og mikilvægu starfi. Undanfarið hafa meðal annars Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar og Björgunarsveitin Skyggnir tekið á móti hópum, kynnt starfsemi sína og sagt frá sveitarfélaginu okkar. Slíkt starf er ein af mörgum birtingarmyndum þess mikla framlags sem félagasamtökin leggja til samfélagsins, hvort sem það felst í að efla samheldni og lýðheilsu, styðja við börn og ungmenni eða miðla sögu og sérstöðu svæðisins.

Við getum öll gert betur í að segja frá því góða starfi sem hér er unnið. Við erum öll, hvert með okkar hætti, sendiherrar sveitarfélagsins og getum lagt okkar af mörkum við að kynna Voga, sérstöðu samfélagsins og þann kraft sem hér býr.

Ungmennin okkar eru þar engin undantekning. Þau hafa að undanförnu verið góðir fulltrúar Voga á mótum bæði hér heima og erlendis og staðið sig með miklum sóma. Dugnaður þeirra, metnaður og árangur eru okkur öllum til sóma og við megum sannarlega vera stolt af þeim.

Þjónusta við íbúa

Ein helsta áherslan þessa dagana er að bæta þjónustu við íbúa og styðja betur við barnafjölskyldur. Unnið er að undirbúningi stækkunar Heilsuleikskólans Suðurvalla með það að markmiði að fjölga leikskólaplássum og bæta aðstöðu barna og starfsfólks. Samhliða því er unnið að aðgerðum sem eiga að létta undir með fjölskyldum og mæta þörfum þeirra, bæði til skemmri og lengri tíma.

Frístunda- og menningarnefnd hefur sett í forgang mótun nýrrar íþrótta- og tómstundastefnu, undirbúning frístundarútu og útfærslu samgöngustyrks. Markmiðið er að fleiri börn og ungmenni geti tekið þátt í íþrótta- og tómstundastarfi og að búseta eða samgöngur standi síður í vegi fyrir þátttöku.

Fræðslunefnd hefur jafnframt kallað eftir úrbótum á frístundaheimilinu með áherslu á öryggi og aðbúnað barna. Unnið verður að skýrri úrbótaáætlun með það að markmiði að nauðsynlegar breytingar verði komnar til framkvæmda fyrir upphaf næsta skólaárs.

Breytingar hafa einnig orðið í starfsmannahaldi sveitarfélagsins. Ráðningarferli eru hafin eða í undirbúningi og sérfræðingur í skipulagsmálum hefur hafið störf. Á næstu vikum verður lögð áhersla á að tryggja góða yfirfærslu og samfellu í verkefnum og styrkja áfram þjónustu sveitarfélagsins.

Framkvæmdir og umhverfi

Sumarið er annasamur tími í framkvæmdum, viðhaldi og fegrun. Vinnuskólinn hefur staðið sig afar vel og verk hans sjást víða um bæinn. Unnið hefur verið að slætti, hreinsun gatna og fegrun umhverfisins. Blómaker setja fallegan svip á bæinn og nýtt beð hefur verið útbúið við Stapaveg.

Þá hefur óþreytandi sláttuvélmenni bæst í hópinn og heldur knattspyrnuvellinum vel snyrtum.

Aðstaðan við grenndargámana hefur verið bætt verulega og þar er nú hægt að flokka úrgang í sjö mismunandi flokka. Breytingin auðveldar íbúum flokkun og stuðlar um leið að snyrtilegra umhverfi.

Viðgerðir við grunnskólann eru komnar vel á veg og vinna við endurbætur á fráveitu er einnig á lokametrunum. Jafnframt er undirbúningur hafinn að frekari gatnagerð, aðgerðum til að bæta umferðaröryggi og stígagerð að Stapanum.

Í vikunni átti ég góðan fund með vegamálastjóra þar sem farið var yfir stöðu vega, umferðaröryggis og annarra mikilvægra innviða sveitarfélagsins. Þetta eru verkefni sem hafa bein áhrif á öryggi og daglegt líf íbúa og mikilvægt er að fylgja þeim vel eftir.

Og svo eru það litlu sigrarnir sem skipta líka máli. Nuddtækið í heita pottinum er komið í lag og ég hef á tilfinningunni að það muni gleðja marga.

Horft fram á veginn

Verkefnin eru mörg en stefnan er skýr. Við ætlum að halda áfram að bæta þjónustuna, styðja við fjölskyldur og byggja upp sterkt samfélag í góðu samstarfi við íbúa, starfsfólk og atvinnulíf.

Það sem stendur þó mest upp úr hjá mér eftir fyrsta mánuðinn er fólkið sjálft. Ég finn fyrir metnaði, vilja til samstarfs og trú á að við getum náð langt þegar við vinnum saman.

Og hver veit, kannski verður hugmyndin um háskóla í Vogum einn daginn ekki alveg jafn langsótt og hún kann að virðast í dag.

Eigið góða helgi og njótið sumarsins.

Kær kveðja,
Björg Ásta Þórðardóttir
bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga