Forsetakosningar

Forsetakosningar

Laugardaginn 1. júní 2024

Kjörskrá liggur frammi almenning til sýnis, frá föstudeginum 10. maí fram að kjördegi, á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2.

Kosningarétt við forsetakjör eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarétt sbr. 3. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.

Kosið er í Stóru-Vogaskóla

Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.

Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.


Fram að kjördegi er hægt að kjósa utan kjörfundar á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma.

Að gefnu tilefni er Grindvíkingum með aðsetur í Vogum bent á að kjörstaður Grindvíkinga er í Reykjanesbæ.

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga