Forkynning á tillögu að deiliskipulagi - Grænabyggð, norðursvæði.

Sveitarfélagið Vogar auglýsir forkynningu á tillögu að deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar íbúabyggðar í Grænubyggð, nánar tiltekið norðursvæði í gildandi aðalskipulagi, í samræmi við 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr. 40. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið er skilgreint sem íbúabyggð í gildandi aðalskipulagi en ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja íbúðarbyggð með 334 íbúðum í sérbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að einbýlishús og parhús á einni hæð verði vestast á svæðinu nær ströndinni en þar fyrir ofan komi lítil fjölbýlishús eða raðhús á tveimur hæðum. Fölbýlishús, allt að 4 hæðir, verða við norðurjaðar svæðisins næst Vatnsleysustrandarvegi.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér

Greinargerð deiliskipulags má nálgast hér

Opið hús verður hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum 27. júlí 2023 milli kl. 13:00 – 16:00 þar sem íbúum og hagsmunaaðilum gefst kostur á að kynna sér tillöguna.

Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi tillögurnar á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið byggingarfulltrui@vogar.is til og með 10. ágúst 2023.

Skipulags- og byggingarfulltrúi