Flutningur á færanlegri kennslustofu gekk vel

Skólastofan sett á sinn stað
Skólastofan sett á sinn stað

Færanleg kennslustofa sem sveitarfélagið hefur fest kaup á var flutt frá Hvolsvelli í Voga í nótt. 

Síðustu vikur og mánuði hefur ýmislegt gengið á sem hefur tafið flutning færanlegrar kennslustofu sem taka á í notkun á vordögum og mun hýsa nýja leikskóladeild við Heilsuleikskólann Suðurvelli.

Til stóð að flytja húsið frá Hvolsvelli í upphafi nýs árs en náttúruhamfarirnar á Reykjanesi og slæm veðurskilyrði hafa tafið verkefnið. Til stóð að flytja húsið, sem er um 85 fermetrar að stærð og 20 tonn að þyngd, um Suðurstrandaveg en í kjölfar atburðanna í Svartsengi og við Grindavík varð ekkert úr þeim fyrirætlunum. Vegna þungatakmarkana á Krýsuvíkurvegi reyndist heldur ekki mögulegt að fara þá leið og hefur því ríkt talsverð óvissa um hvort og þá hvenær hægt yrði að flytja kennslustofuna og taka hana í notkun. 

Með aðstoð Almannavarna fékkst þó loks undanþága frá Samgöngustofu fyrir flutningi kennslustofunnar í gegnum Grindavík og fór flutningurinn fram síðastliðna nótt. Að sögn þeirra sem komu að verkinu gekk það að mestu leyti greiðlega fyrir sig en verktakafyrirtækið Jáverk sá um flutninginn fyrir sveitarfélagið.  

Í morgun var húsið síðan híft á sökklana við hlið Heilsuleikskólans Suðurvalla og er vinna við frágang og lagnatengingar nú þegar hafin. Það styttist því í að leikskólinn fái húsnæðið afhent þegar vinnu við innréttingar og breytingar á húsnæðinu í samræmi við þarfir leikskólans er lokið.

Myndir frá verkefninu