Flotinn - flakkandi félagsmiðstöð í Vogum

Í sumar mun Flotinn sinna vettvangsstarfi í sveitarfélaginu utan hefðbundins opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar. Flotinn er flakkandi félagsmiðstöð þar sem starfsfólk er á ferðinni úti í hverfum bæjarins með það markmiði efla verndandi þætti í lífi unglinga og draga úr áhrifum áhættuþátta í umhverfi þeirra.

Megináhersla Flotans er að styðja við félagslega velferð unglinga í Vogum og stuðla að öruggu, jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi þar sem þau geta notið æsku sinnar. Verkefnið er viðbót við starf félagsmiðstöðvarinnar Borunnar, sem rekin er á vegum sveitarfélagsins, og starfar þvert á bæjarfélagið án þess að vera bundið við ákveðin svæði.

Hlutverk vettvangsstarfsins er meðal annars að sporna gegn því að börn og unglingar séu eftirlitslaus úti eftir lögbundinn útivistartíma, vinna gegn áhættuhegðun og auka almennt öryggi barna og ungmenna í sveitarfélaginu. Þá verður Flotinn einnig til staðar í tengslum við stærri viðburði, svo sem Fjölskyldudaga, Ljósanótt og Menningarnótt.

Flotinn leggur jafnframt áherslu á öflugt forvarnarstarf, aukið upplýsingaflæði til foreldra um verndandi þætti í uppeldisumhverfi barna og unglinga og gott samstarf þeirra fagaðila sem koma að uppeldi, öryggi og velferð ungmenna.

Starfið fer fram í nánu samstarfi við nágranna sveitafélög, þjónustumiðstöð barnaverndar og Lögregluna á Suðurnesjum. Starfsmenn Flotans verða vel auðkenndir í bláum merktum fatnaði. Félagsmiðstöðin Boran heldur utan um verkefnið og verða starfsmenn Flotans á vettvangi á fimmtudagskvöldum í sumar. Boðið verður upp á pop-up viðburði eins og fótbolta á skólalóðinni, leiki í Aragerði eða annað skemmtilegt frá kl. 20:30 til 22:00. Að því loknu mun starfsfólk rölta um bæinn fram yfir útivistartíma og vera ungmennum innan handar.