Laus störf

Vinnuskólinn leitar að flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2023. Starfstímabilið er frá  22. maí til 24. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi ríka þjónustulund og séu sjálfstæðir.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skal að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Nánari upplýsingar um starf flokkstjóra veitir Hanna Lísa Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri á umhverfis og skipulagssviði í síma 440-6207 eða Ellen Lind Ísaksdóttir, yfirflokkstjóri í síma 855-6234

Umsjónarmaður leikjanámskeiðs
Leitað er að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri.

Nánari upplýsingar um starf umsjónarmanns leikjanámskeiðs veitir Guðmundur Stefán, Íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 793-9880.

Öll eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Vinnuskóli Sveitarfélagsins Voga er vímulaus vinnustaður

Umsóknir sendist rafrænt á vinnuskoli@vogar.is fyrir 5. maí næstkomandi.