Flokkstjórar í Vinnuskóla Sveitarfélagsins Voga

Vinnuskóli Sveitarfélagsins Voga auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2021. Starfstímabil er frá 17. maí til 20. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi;

  • ríka þjónustulund,
  • góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
  • góða hæfni í mannlegum samskiptum,
  • mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Vinnuskóli Sveitarfélagsins Voga er vímulaus vinnustaður.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur (VSFK)  og Verslunarmannafélags Suðurnesja.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðmundur Stefán Gunnarsson íþrótta og tómstundafulltrúi Sveitarfélagsins Voga í síma 7939880, netfang: gudmundurs@gmail.com.

Umsóknum skal skilað á netfangið gudmundurs@vogar.is fyrir 1. mars nk.