Þó fimmtudagsfræðslan sé miðuð að eldri borgurum og þeirra óskir um efnistök í fyrirrúmi eru auðvitað öll áhugasöm velkomin.
Það hefur verið gaman að sjá hve vel fólk hefur sótt viðburðina og var ekki síður góð mæting á fræðsluna með Elínu Þ. Samúelsdóttur um gervigreindina. Okkar góða eldra fólk er með puttana á púlsinum og vil sannarlega vera upplýst um nýjasta nýtt í tækniheiminum.
Gervigreind (AI) er tækni sem gerir tölvum og kerfum kleift að hugsa, læra og leysa verkefni á svipaðan hátt og manneskjur (svar frá gervigreindinni).
Þennan fimmtudag bauð Día upp á smurbrauðstertu og perutertu enda afar mikilvægt að hafa eitthvað gott að maula meðan hlýtt er á allt þetta góða fólk sem mætir til að auðga líf okkar.

Elín Þ. Samúelsdóttir hélt fræðandi erindi um gervigreindina

Glæsilegar veitingar frá Díu, umsjónamanns félagsstarfs eldri borgara í Vogum