Fasteignagjöld 2022

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2022 hafa nú verið gefnir út. Álagningarseðlar eru sendir í pósti til þeirra sem fæddir eru 1948 og fyrr, en aðrir fá rafræna seðla.

 

Fasteignamat í sveitarfélaginu hækkar á bilinu 10 – 20% milli áranna 2021 og 2022. Heildarfjárhæð fasteignagjalda fylgir þrátt fyrir þetta að mestu verðlagsþróun milli ára, en breytingar eru á milli ára á einstökum álagningarþáttum fasteignagjaldanna.

Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði er nú 0,43%, en var 0,335% af fasteignamati á síðasta ári. Lóðarleiga lækkar úr 1,15% í 0,5% af fasteignamati. Fráveitugjald lækkar úr 0,13% í 0,11% af fasteignamati. Loks lækkar vatnsskattur úr 0,155% í 0,1% af fasteignamati. Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld hækka á milli ára í samræmi við ákvörðun stjórnar Kölku, og er hækkun þessara gjaldaliða einnig í samræmi við verðlagsþróun milli ára.

 

Veittur er afsláttur á fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum, tekjuviðmið voru uppfærð og hækkuð milli ára. Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af fasteignaskatti, séu gjöldin að fullu greidd eigi síðar en 19. febrúar 2022. Gjalddagar fasteignagjalda eru 10, frá 25. janúar – 25. október, eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

 

Reglur um lækkun og-niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Skýringar vegna álagningarseðils-fasteignagjalda-2022.