Fasteignagjöld 2020

Álagningarseðlar eru eins og venjulega sendir út til allra íbúa 70 ára og eldri sem og lögaðila, en aðrir eru hvattir til að nálgast álagningarseðlana á íbúagáttinni á heimasíðu sveitarfélagsins. Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar þriðja árið í röð, er nú 0,32% í stað 0,33% á síðasta ári. Fráveitugjaldið lækkar einnig. Sorphirðu- sorpeyðingargjald hefur hinsvegar hækkað lítillega. Aðrir gjaldaliðir eru óbreyttir frá fyrra ári.

Veittur er afsláttur á fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum, tekjuviðmið voru hækkuð á milli ára. Veittur er staðgreiðsluafsláttur af fasteignaskatti, séu gjöldin að fullu greidd eigi síðar en 20. febrúar 2020. Gjalddagar fasteignagjalda eru 10, frá 25. janúar – 25. október, eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

 Skýringar vegna álagningarseðils fasteignagjalda 2020