Vinnuskólinn auglýsir eftir öflugum og jákvæðum flokkstjórum í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026.
Vinnuskóli sveitarfélagsins starfar frá maí til ágúst ár hvert. Þar gefst ungmennum kostur á að vinna við fjölbreytt störf. Sem flokkstjóri ertu leiðbeinandi, fyrirmynd og drifkraftur hóps ungmenna. Þú kennir þeim undirstöðuatriði garðyrkjustarfa, skipuleggur verkefni, hvetur til góðrar samvinnu og heldur utan um mætingar og ástundun. Meginmarkmiðið er að skapa jákvæða upplifun þar sem þjálfun, fræðsla og góð líðan eru i forgrunni.
Flokkstjórar starfa undir verkstjórn verkstjóra vinnuskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026. Öll eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Viðarsson, david@vogar.is.
Umsóknir skulu berast í gegnum www.alfred.is